Final countdown
Niðurtalningu lokið!
Fyrir 956 dögum
28.02.2008 13:18:14 / guðný

STÓRVIÐBURÐUR

Já þá að Yoni síðan góða sé í mikilli lægð þýðir það ekki að við getum ekki hent inn svo litlu sem einu afmælisbloggi.....


Já Veigan seiga er 19 ára í dag!... Þetta eru merkisviðburðir og var fátt annað á vörum fólks á göngum MS í dag!



Já til hamingju Veigmundur með tilgangslausasta aldur sem til er... Haha aðeins 1 ár í tvítugsaldurinn :D.....

þínar að eilífu


YONI

» 2 hafa sagt sína skoðun

24.01.2008 20:57:16 / hallveig

SJOKK

 

 

 

Þetta er búið að vera frekar sorgleg vika... fullt af fólki að hætta sinna sínum störfum t.d

 

 

Heath Ledger er dáinn...frekar leiðinlegt... og munum við aldrei sjá hann..

 

 

 

 

Dagur B Eggertsson þurfti að víkja frá borgarstjórastólnum og er kominn  Ólafur F Magnússon

 

Er fólk almennt sátt? veit það ekki??

 

 

og svo að lokum var landsliðs-handbolta-þjálfarinn okkar Alfreð Gísla að tilkynna að hann væri hættur með landsliðið...

 

mjög leiðinlegt að þessi myndalegi maður sé hættu að starfa í þágu þjóðarinnar...

 

 

Frekar sorgleg vika:(

 

Við Yoni syrgjum þá alla á sinn háttt

 

en ég segi bara góða helgi....

 

 

 

 

 

 

 


» 6 hafa sagt sína skoðun

17.01.2008 15:13:52 / guðný

Grímuball!

 

 

Hikuðum ekki við að gefa mönnum rauð spjöld fyrir ósæmilega hegðun!

 

Djöfull vorum við nettar í fyrra!

Komið ár frá því að eitt af skemmtilegri böllum sem ég hef farið á var!

Gleðilegt!

Sjáumst í kvöld á grímuballi!


» 1 hafa sagt sína skoðun

15.01.2008 03:20:15 / guðný

Áramótaheit?

Ég var að skoða gömul Yoni blogg og rakst á eitt frá Janúar 2007... Fyrsta bloggið það árið reyndar... Þar höfðum við sett okkur ákveðin áramótaheit... Gaman að sjá hvort við fylgdum þeim eftir... En þau voru svohljóðandi!

 

01.01.2007 15:54:01 [hallveig]
  2007  

 

 

Gleðilegt nýtt ár!

 

 

 

Á þessu ári ætlum við......

*ekki að fara á Broadway næstu áramótum

*Yoni-ur að vera mjög virkar og búa til nýjan banner einhver tíman á árinu

*Yni að taka okkur á í matarræði..good luck0

*að fara til útlanda00

*að losna við Svanbjörgu...

 


 Svona þegar ég lýt til baka yfir árið þá sé ég að við höfum bara tekið þessum áramótaheitum mjög alvarlega!

*Fórum klárlega ekki aftur á Broadway um áramótin heldur á Nasa og Prikið og mikil ósköp var GAMAN!... Svona lærir maður af mistökum:)

* Við bjuggum til nýjann banner.. Þennan bláa muniði. Það er reyndar löngu kominn tími á nýjann!!! Hvað varð um hugmyndina okkar um dýra´búkana og okkar hausa Hallveig:S?

* Uuu.... Mataræðið.... Same...  KFC?... ;)

* Við fórum svo sannarlega til útlanda... Benidorm í sumar Ógleymanlegt svo eitthvað sé sagt. Hversu minnistætt er það að viðbeinsbrotna? Getur ekki gleymst! :D...

* Svana hangir því miður stanslaust utan í okkur ennþá! Það gekk ekki nægilega vel að losna við hana svo við ákváðum að leyfa henni að vera memm at all times:D...  Ekki slæm ákvörðun það!


Spurning um að koma með ný áramótaheit fyir 2008 svona í tilefni þess að ég er að blogga?

 Æj nei..... finn ekki upp á neinu sniðugu!

nema...

* Kannski taka ekki sama klúður og fyrir Benidorm og ná kannski að redda okkur drullu nettum kroppum fyrir útskriftarferðina:)... Ekki aftur sama vitleysa og fyrir Bene;)

*Annars bara stunda gleði og gleðilega atburði ofar öllu!

* Og að sjálfsögðu rækta námið!

 

En að öðru... leikritsæfingar komnar á fullt¨... Lítur strax mjög vel út!

 

Svo er það

MS vs. Versló í kvöld

 

Áfram MS

(Tóti ég held með þér!) ;D

 

Nú læt ég gott heita!

-Gvendólína

 


» 1 hafa sagt sína skoðun

10.01.2008 17:26:15 / SvanaBerg

Blogg frá Svönu :D

Jæja ég hef tekið þá sterku og djúpu ákvörðun að blogga:D Ég sit hérna sem gæsluvörður fyrir utan baðstofu World Class og er að banna fullvaxta fólki að svindla sér inn. Það er mjög skemmtilegt að bösta fullvaxta fólk að reyna að svindla sér inn. Þau verða svo kjánaleg, verða bara eins og lítil börn. Horfa á mig með miskunnar augum og halda að það bjargi einhverju! Ekki á minni vakt. Þau segja oftast ekki neitt, eins og t.d. væri fínt að segja "Fyrirgefðu", þau labba oftast bara í burtu, en sumir segja:  "Hún þarna uppi sagði að ég mætti fara inn!" Ég bara "Jee right!" Ég er viss um að ég hafi oft látið þau líða ógeðslega illa og kjánalega. So sorry!

En ég hef ekkert skrifað um jólafríið mitt. Það var reyndar ekkert spes, svaf, vann, drakk og horfði á sjónvarpið- og auðvitað spilaði:D Það er skemmtilegast í heimi. Ég og Fanney ákváðum aðfaranótt 27. des, að labba til Söru í öllum snjónum og fara að spila með henni og Guðnýju Bíóbrot- sem er btw ógeðslega skemmtilegt spil. Og vitið menn- ég og Guðný rústuðum Söru og Fanneyju:D JEiii

Hallveig í góðum stemmara í partýinu hans Hlyns!

En ég gerði eitt uppbyggilegt í jólafríinu. Ég fór á skauta með börnum systur minnar. Diljá frænka mín er 7 ára og kann þetta ágætlega en Bjartur sem er 4 ára hann var ekki alveg að ná þessu þannig að ég fór með hann hring eftir hring eftir hring. Svo fékk hann leið á þessu þannig að hann fór bara til mömmu sinnar sem beið þarna í kaffihorninu. Svo skautaði ég ein, hring eftir hring eftir hring í flottu bláu leiguskautunum. HAHA ég man þegar ég og Fanney vorum fastagestir á skautasvellinu. Við mættum á hverju einasta föstudagskvöldi. Vorum alltaf frá 17 til 22. Fanney eignaðist kærasta þarna á svellinu. Ég man eftir einu sem er mér mjög minnistætt, það var alltaf sérstakur leikur í gangi. Maður átti að finna einhvern strák til þess að leiða vinkonu sína einn hring. Ég valdi alltaf mjög flotta gaura handa Fanney. Hún byrjaði nú með einum á skautasvellinu og hann var MJÖG sætur. En Fanney kom alltaf með einhverja glataða gaura til mín, sem ég þurfti að leiða heilan hring. Ég man eftir einum, sem var örugglega þremur árum eldri en ég og ég var í 5. bekk á þessum tíma og hann var í stærri kanntinum, við getum sagt það, allt í lagi með það, svo var hann í fjólubláum gallabuxum, en það versta var að hann kunni ekkert að skauta, hann var í bláum leiguskautum, sem voru btw ógeðslega hallærislegir, og var alltaf að detta og draga mig með á svellið. Fanneyju fannst þetta mjög fyndið, en ég hef ekki enn þá fyrirgefið henni valið á mannsefni fyrir bestu vinkonu sína þetta kvöld. Þó að þetta hafi verið einn skitinn hringur þá var þetta mjög vandræðalegt- hann sagði alltaf "Fyrirgefðu, ég kann ekkert á þetta!" á meðan ég dröslaðist aftur á fætur, rennandi blaut. En engu að síður þá var þetta mjög skemmtilegt tímabil hjá mér og Fanney. Úlla kom stöku sinnum- eða var það ekki???? 

HAHA ég og Fanney í 1. bekk, held ég. Fann ekki eldri mynd af okkur saman. Googlaði "Svana og Fanney" í myndaleit:D

Já þegar ég byrjaði að raula með James Blunt lagið 1973, þá fattaði ég það að ég hafi verið ein mjög lengi og skautað hring eftir hring eftir hring. Fyrir framan mig var mesta skinkukambó dauðans. Einhver gaur sem var frekar ófríður, pott þétt einn af þeim sem verður myndarlegri með aldrinum:S Hann var að halda utan um kærastuna sína, sem var gangandi dæmi um skinku í 9. bekk. Það fyndnasta við þetta allt saman var það að kærastan hélt í hendina á vinkonu sinni. Ég grenjaði úr hlátri. HAHA, það eins og Hófí og Árni væru geðveikt rómó, haldandi utan um hvort annað á svellinu og ég væri að leiða Hófí. Mjög fyndið.
En ég og frænka mín Diljá vorum ansi lengi að skauta, en ekki saman, hún fann einhverja vinkonu sína sem var mun meira spennandi en ég, þannig að já eins og sagði áður þá var ég mjög lengi ein. Við stelpurnar ættum að fara að byrja á þessu, mæta á hverju einasta föstudagskvöldi og leiða einhverja stráka nokkra skitna hringi???? Neiii við erum pott þétt old news þarna á svellinu. En nóg af þessari sögu......

En já eins og ég sagði áður þá djömmuðum við mikið yfir hátíðarnar og maður var eiginlega alveg búin á því eftir gamlárskvöld. En seinustu helgi þá fórum við á Hereford að halda upp á afmæli Söru. En það skemmtilegasta við þessa kvöldstund okkar var það að Sara hafði ekki hugmynd um að við værum að fara þangað. Þannig að ég laug því að Söru að við værum að fara að þjóna fyrir Sjálfstæðisflokkinn, eitthvað sem ég og Hallveig höfum oft gert áður og það er alltaf jafn gaman, Sara trúði þessu algjörlega og ég laug því að henni að við myndum fá geðveikt góðan mat áður en við myndum byrja að þjóna fólkinu, og að hún ætti einnig að vera mjög fín. Svo fórum við að sækja Söru og sögðum að við værum að fara að þjóna í sal sem væri við hliðina á Hereford. Svo erum við að labba Laugaveginn og Sara bara "Ég held að þið vitið ekkert hvert við eigum að fara, Svana hringdu aftur í mömmu þína!" En ég gerði það svo aldeilis ekki, við löbbuðum upp stigann og inn á Hereford þar sem Sara stoppar og segir "Nei, hvert eru þið að fara, þetta er vandræðalegt! Hvað sagði eiginlega mamma þín Svana??!" -  "Ég man það ekki alveg". Svo löbbuðum við allar inn og Guðný sagði nafnið sitt við einn myndarlegan þjón og okkur var fylgt að okkar borði. Sara var aldeilis hlessa! Henni datt þetta ekki í hug! Við buðum Söru upp á geðveika steik, hún var ekkert smá sátt- vel heppnað kvöld :D

Hvað var í gangi í þessu partýi?? Hlynur!!! Hvað ertu að gera með hamar??!!!

Jááááá.... ég er búin að skrifa ansi langt blogg, vonandi á fólk eftir að lesa það og hafa gaman af. Smá myndaflipp í endann!

Fallegasta par í heimi!!

Ég þakka fyrir mig ;)

 


» 4 hafa sagt sína skoðun

27.12.2007 18:07:23 / hallveig

jólasnjór

 

 

 

 

Harpa til hamingju með afmælið!

 

 

 

 

 

 

Þessi maður er draumur í dós!!

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

24.12.2007 18:03:36 / guðný

Jólajól....!

.

.

.

.

. 

Gleðileg jól

.

.

.

.

.


» 0 hafa sagt sína skoðun

21.12.2007 22:36:04 / SvanaBerg

Próflokadjammið???

Já, ég ætla að koma með framhald af blogginu hennar Guðnýjar..... Föstudagurinn var sem hér kemur fram:

 +  5x+

 

+

 

+ 5x 

 

+ 5x+

:D


» 2 hafa sagt sína skoðun

14.12.2007 06:23:52 / guðný

Prófprófajófjól...?

Jæja nó um hetjutal hérna á síðunni...

 

Jæja þá fer þessari prófatörn senn að ljúka. Stelpurnar verða komnar í jólafrí núna eftir 4 og hálfan tíma:D

 

En ég því miður ekki fyrr en á mánudaginn:(.. Mikið svekkelsi þar á ferð en ég er farin að venjast hugmyndinni um það að fá ekkert að fagna með bjór í hendi í kvöld heldur bara kók glas:D

Hljómar alveg jafn vel... Bjór er ekkert skemmtilegur....

 Mmmmm Tuborg...

 

Væri hressilega til í nokkra svona í kvöld..!! Ohh hata þetta prófaskipulag...

Við sjáum til hvort skynsama Guðný vinni drykkjuGuðný þegar komið er að því að allir fara að bjóða gleðinni heim til sín...

 Ég á að vera að læra undir stærðfræðipróf... Þannig ég er aðblogga um bjór í staðinn

 

Í kvöld verður þetta svona :

   +   

 

  + 

 

 

  + 

 

 

jájá takk fyrir mig... Þetta var heilsusamlegasta blogg sem komið hefur á Yoni:D

 

-Guðný :D


» 6 hafa sagt sína skoðun

10.12.2007 11:51:11 / saramatt

Þetta ER

 

 

 Raunverulega Hetjan!!

SARA MATT í öllu sínu Veldi

In Yours HALLVEIG!

SARA the master of Yoni

 

 

 

 

 

 

 


» 2 hafa sagt sína skoðun

09.12.2007 14:57:02 / hallveig

Njála

 

 

 

 

Hetjur fortíðar =

 

 

 

 

 

 

 

 

Hetjur samtímans =

 

 

 

     

 

 

Myndablogg fyrir Guðnýju....

 

 

 


» 5 hafa sagt sína skoðun

01.12.2007 18:51:11 / hallveig

Afmæli!

 

 

 

 

 

AFMÆLI!

 

Við erum stoltar að tilkynna ykkkur það að einn af meðlimum YONI er nú orðin 18 ára..

 

Hver er það??

 

smá vísbending

 

hún er ljóshærð,á hund,var að setja hönnun sína á markaðinn ,elskar bjór meira en flestir aaa...þarna kom ég alveg upp um hana, það er enignn önnur en ...

 

 

 

SARA!

 

 

 

 

 

 

 

Afmæliskveðja frá

 

 

 

 


» 8 hafa sagt sína skoðun

22.11.2007 03:57:53 / guðný

Próflestur?.. neee

In my defence þá hef ég alveg gert nokkrar tilraunir til að blogga seinustu misseri en af einhvejum ástæðum hafa bloggin ítrekað þurrkast út eða einehrv álíka skítur gerst. En hér er ég sest klukkan hálf 4 um nótt til að drita niður nokkrum orðum þar sem skrif hafa látið í lægri pokann fyrir leti og busy-leika. It´s a word.

 Lítið höfum við nú bloggað um þessa íðilfögru haustönn sem er nú senn á enda en hún hefur verið topp önn og myndi ég setja þessa önn í annað sæti á eftir vorönn í 2. bekk... Sem var besta önn lífs míns ef þið sjáið hvert ég er að fara með þetta. Prófin á næsta leyti sem þýðir aðeins eitt! Haugastrfsemi fer á fullt. Plönin verða stór um það að vakna snemma hina og þessa dagana til að læra vel og svo að maður þurfi ekki að lenda í sömu vitleysunni og alltaf. Læra ekki neitt þar til nóttina fyrir prófið og mæta svo alltaf ósofin í próf eftir hörkulega lærdómsnótt.

Ég og Hallveig vorum einmitt að ræða það hvað það er samt brjáluð stemmning að vera í prófaviku. Endalaust stress og svo er maður alltaf í því að verðlauna sig fyrir að hafa náð að einbeita sér í klukkutíma með því að horfa kannski á eitt stykki friends seríu inn á milli! Svo er náttúrulega ekkert jafn mikil snilld og próflok og þar með próflokadjömmin sem að standa yfir svona 4 helgar eftir próflok:D En þar sem að ég er vitleysingur og er á náttúrufræðibraut er ég ekki búin í prófunum fyrr en mánudaginn 17. desember á meðan allir hinir Yoni-meðlimir eru búnir föstudaginn 14. des! Hef sjaldan verið eins hneyksluð á skipulagi!Ég er skíthrædd um að falla í gryfju freistninnar og tjútta með stelpunum það föstudagskvöld sem gleði mun vera hvað hæst í þeirra hugsun!

 Ég segi stelpur að nú tökum við smá yoni átak í bloggum!Hvernig væri að við kæmum með gamla Yoni-fílinginn aftur þar sem bloggað var sirka 2var í viku jafnvel um ekki neitt merkilegt. Segja aftur frá því hvernig helgarnar höfðu verið því það er svo vangefið gaman að skoða gömlu bloggin svo eftir á! Spurning um að búa svo til Yoni-bók þegar við klárum okkar menntaskóla göngu:D… Ég skal skipa mig í þá nefnd að gefa ykkur einhevrntímann svoleiðis í jólagjöf!!  '85 undirbúningur.. Veiguna vantar á myndina!... sLæMt

 

Ef ég tek nú bara af skarið og segji frá seinustu helgi þá var hún í betri kanntinum!Á föstudeginum var útlitið ekkert svo bjart og planið var að skella sér bara á eina devitos sneið og fara svo í háttinn! Allt kom þó fyrir ekki og við enduðum í nokkrum bjórum á Kultura sem að ákveðnar stúlkur vilja meina að sé “nýja Prikið” sem er ein mesta vitleysa sem ég hef heyrt og vona að þær hafi einungis sagtsvo í gamin sínu. En eftir Kultura var rölt yfir í hverfis í frekari bjórdrykkju en komumst við svo að því bjórinn kosti þar heilar  1000 kr! Það létum við nú okkur ekki hafa og var bara hlupiðyfir á ellefuna í einn bjór og svo skellt sér aftur í smá dansstund á hvebbanum! Alltaf gaman á ellefunni, áhugavert og skemmtilegt folk sem að maður hitter þar! Má þar nefna að Sara lenti á sjéns en neitaði þá herramanninum mjög kurteysislega haha!!

Laugardagurinn fór einnig í bjórdrykkju ef út í það er farið. Byrjuðum á sötri heima hjá Veigunni Lafsson. Ég, Egill, Sara, Hallveig og Hlynur(Burgerinn veikur). Ég og Sara vorum í hvítvíninu þar sem að við fengum gefnar ófáar vínflöskur í afmælisgjöf! En svo var haldið niður í bæ og Byrjuðu ég og Sara á því að hlaupa inn á Kofann þar sem að við heyrðum að það væri verið að spila Total Eclipse of the Heart með Bonnie Tyler og stóðumst við ekki mátið og hlupum inn til að dansa:D Annars var svo hoppað yfir á Prikið og stóð það að sjálfsögðu fyrir sínu!  

En þar sem þetta blogg er orðið lengra en mörgum hefði grunað að það yrði(góð setning! Takk)  þá vil ég hér með slútta þessu og bjóða ykkur góða nótt.. Eða jafnvel góðan dag! 

En eitt að lokum þá er skrall næstu helgi þrátt fyrir að prófmisseri sé á næsta leyti! Árshátíð ísbúðarinnar þannig að það verður allt hellað hjá okkur ísbúðarstelpunum á laugardagskvöldið, einnig hefur Freyja staðfest mætingu sína í skrall og veigan og Burger verða einhvesstaðar fullar líak ef ég fæ einhverju um það ráðið þannig að næsta helgi boðar ekkert nema gleði… 

En þá kveð ég að sinni!

-Guðný 

» 4 hafa sagt sína skoðun

05.11.2007 19:16:17 / hallveig

heyheyhey

 

 

 

AFMÆLI OG 85´

 

 

 

 

 

Ég vill bara byrja á því að óska fólki gleðilegar hátíðar og vonandi er að fólka að njóti sín, því nú er aldeilis tími til að fagna. Guðný á afmæli í dag og 85´vikan í MS BESTA SKÓLA Í HEIMI var að byrja. 

 

 

 

 

 

Í dag er gleðidagur....Uppáhalds manneskjan mín í öllum heiminum á afmæli í dag það er hún GUÐNÝ RAGNA RAGNARSDÓTTIR. Stúlkan er orðin 18 ára gömul búin að vera akandi í eitt ár og læti.

 

 

 

 

Hún Guðný Ragna er algjört yndi og á hún allt gott skilið og vonandi nær hún að njóta dagsins...

 

 

 

 

 

 

 

   

 

 

Hafðið það gott þessa viku!!!


» 2 hafa sagt sína skoðun

26.10.2007 21:26:55 / SvanaBerg

Spurning mánaðarins

 

 

Færð þú þér

 

 

 

kokteilsósu á

 

 

pizzu??

 

Þetta er engin djók spurning, ætla bara

að tékka á því hvernig fólk tekur í

þetta! :D Sumir svara ,,ojjjj!!!" og sumir

 svara

 ,,MMMM það er svo gott!"

 

úúúúúú


» 6 hafa sagt sína skoðun

Síður: 1 2 3 ... 25
Klukkan
Leitarbox